Viðskipti erlent

Kauphöllin kannar lagaákvæði um undanþágu frá uppgjörum

Stjórn kauphallarinnar er nú að láta lögfræðinga sína kanna lagaákvæði sem yfir tíu félög hafa notað sem undanþágu frá því að birta ársuppgjör sín á réttum tíma, það er fyrir 30. apríl s.l. Þórður Friðjónsson forstjóri kauphallarinnar segir að hann telji að þessi notkun á ákvæðinu samræmist ekki tilgangi þess.

Ákvæðið um verðbréfaviðskipti sem hér um ræðir kveður á um félögum sem aðeins hafa skráð skuldabréf heimilt að birta ekki uppgjör í kauphöll ef lágmarksfjárhæð hvers skuldabréfs er a.m.k. 50.000 evrur að nafnvirði.

Þórður segir að félög í fjárhagserfiðleikum eigi ekki að geta notað þetta ákvæði á þennan hátt, að fresta birtingu á ársuppgjörum sínum, þar sem uppgjörin geti sannanlega verið markaðsverðmyndandi.

„Við erum að skoða málið frá öllum hliðum og fara rækilega yfir það enda teljum við fráleitt að félög geti haldið upplýsingum frá markaðinum með þessum hætti," segir Þórður.

Þórður telur að hugsanlega muni þessi vinna kauphallarinnar leiða til þess að lögunum verði breytt svo koma megi í veg fyrir að þessi frestun endurtaki sig í framtíðinni.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×