Manchester City úr leik í UEFA-bikarnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. apríl 2009 19:49 Elano sækir boltann í markið eftir að hafa jafnað leikinn. Mynd/GettyImages
Enska liðið Manchester City er úr leik í UEFA-bikarnum þrátt fyrir 2-1 sigur á þýska liðinu Hamburger SV í seinni leik liðanna í 8 liða úrslitum keppninnar í kvöld. Manchester City gerði sér erfitt fyrir með því að tapa fyrri leiknum 3-1 í Þýskalandi. Hamburger SV vann því 4-3 samanlagt. Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir Manchester City þegar Paolo Guerrero kom þýska liðinu í 1-0 eftir aðeins tólf mínútna leik. Elano jafnaði leikinn úr vítaspyrnu fimm mínútum síðar og Feilipe Caicedo skoraði síðan annað markið á 50. mínútu. Manchester City fékk hvert færið á fætur öðru í kjölfarið en tókst ekki að skora þriðja markið sem hefði fært liðinu framlengingu. Það var ekki til að hjálpa til þegar Richard Dunne fékk að líta rauða spjaldið á 75. mínútu leiksins. Dunn fékk þarna sitt annað gula spjald fyrir brot. Manchester City spilaði mjög vel í leiknum en heppnin var ekki á þeirra bandi að þessu sinni. Leikurinn var hinsvegar mikil skemmtun. Hamburger SV mætir Werder Bremen í undanúrslitunum en í hinni viðureigninni mætast Shakhtar Donetsk og Dynamo Kiev.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Einkunnir Íslands: Vafasöm varnarlína Fótbolti Neymar getur tekið bílinn með sér upp í nýju þakíbúðina Fótbolti X eftir landsleikinn: Skiptar skoðanir um Hareide og hettan hans Bellamy Fótbolti Liðin sem fóru upp í A-deild og liðin í umspilinu með Íslandi Fótbolti „Leikplan sem við vorum ekki alveg tilbúnir í“ Fótbolti „Eigum ekki að setja sálfa okkur í þessa stöðu“ Handbolti Hareide: „Verður að spyrja KSÍ“ Fótbolti „Það er hundleiðinlegt að tapa svona stórt“ Fótbolti „Bara svona skítatilfinning“ Handbolti Kemur liðsfélaga sínum til varnar: „Einn af uppáhaldsgaurunum mínum“ Handbolti Fleiri fréttir Neymar getur tekið bílinn með sér upp í nýju þakíbúðina „Leikplan sem við vorum ekki alveg tilbúnir í“ Liðin sem fóru upp í A-deild og liðin í umspilinu með Íslandi „Það er hundleiðinlegt að tapa svona stórt“ Hareide: „Verður að spyrja KSÍ“ „Ætla ekki að standa hérna og tala um einhverja einstaklinga“ Umfjöllun: Wales - Ísland 4-1 | Vonin dó í seinni hálfleik og Ísland gæti fallið X eftir landsleikinn: Skiptar skoðanir um Hareide og hettan hans Bellamy Gyökeres skoraði fernu fyrir Svía í Þjóðadeildinni Einkunnir Íslands: Vafasöm varnarlína Svartfellingar unnu Tyrki óvænt og hjálpuðu Wales upp í A-deild Guardiola framlengir við Man. City Sjáðu Andra Lucas skora og Wales svara með fjórum mörkum Hefur ekki rætt við Hareide: „Klárlega búið að ganga vel hjá honum“ Gerir þrjár breytingar á sigurliðinu í Svartfjallalandi Klopp vildi fá Antony í stað Salah Þórdís Elva semur við Þróttara Af hverju er San Marínó framar í röðinni en Ísland? Leikdagur í Cardiff: „Þetta er leikþáttur frá A-Ö“ Hareide ætlar að stöðva taplausa hrinu Wales Ísland neyðist í fyrsta sinn til að spila heimaleik erlendis Aron á leið til Katar og verður ekki á leik kvöldsins Þjálfari Noregs rakar inn milljónum Bellamy heldur ekki vatni yfir Orra: „Verður heimsþekktur“ Fyrirliðinn trúir: „Ansi mörg vopn sem við höfum upp á að bjóða“ Daðrað við elítuna eða hætta á falli? Þegar Walesverjar reyndu að gera lítið úr Íslendingum með apagrímum Ronaldo segir að næsti gestur hans muni setja Internetið á hliðina Tengdasonur Keane skoraði fyrir enska landsliðið Hringir og hringir en fær alltaf nei Sjá meira