Skoðun

Upprætum mansal

Mál litháísku konunnar sem hvarf um skeið í vikunni hefur loksins vakið fólk til umhugsunar um eðli og umfang mansals hér á landi. Málið er til marks um alvarleika þess vandamáls sem mansal er og mikilvægi þess að hér sé vandaður og vel skilgreindur viðbúnaður til staðar.

Fórnarlömb mansals hafa enga ástæðu til að treysta fólki. Einstaklingar og hið opinbera hafa brugðist þeim og allar bjargir virðast vera bannaðar.

Þetta er þekkt meðal sérfræðinga í málaflokknum eins og er vandlega lýst í greinargerð með aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar gegn mansali.

Í áætluninni er vandanum lýst, hann viðurkenndur og kveðið á um 25 aðgerðir af hálfu stjórnvalda. Meðal annars þarf að gera ráð fyrir fórnarlömbum mansals í lögum og veita þarf sérstakan umþóttunartíma á meðan hið opinbera ávinnur sér traust þeirra til að geta veitt nauðsynlega aðstoð.

Sérstakt neyðarteymi þarf að vera til staðar, fræða þarf starfsfólk lögreglu, heilbrigðiskerfis og félagsþjónustu um mansal og grípa þarf til aðgerða sem sporna gegn eftirspurn eftir klámi og vændi.

Enn heyrast efasemdaraddir þegar mansal á Íslandi ber á góma. Að hér hafi engir dómar fallið, mansal hafi því ekki verið sannað og við megum ekki hrapa að ályktunum. Sérfræðingur norsku lögreglunnar í mansalsmálum sagði hér á landi síðastliðinn vetur að nóg væri að spyrja tveggja spurninga:

1. Er eftirspurn eftir vændi á landinu?

2. Eru vísbendingar um að alþjóðleg glæpastarfsemi teygi anga sína til landsins?

Ef svarið er já má ætla að mansal þrífist hér á landi. Sérfræðingar eru einnig sammála um að samfélagið verði aðeins vart við örlítið brot þeirra mála sem í gangi eru eins og í öðrum kynferðisafbrotamálum.

Það er ekki hægt að skilja milli kláms, vændis og mansals. Því er mikilvægast af öllu að eftirspurnin verði upprætt. Ástæðan fyrir mansali er jú viðskiptavinirnir. Ef engir væru kaupendurnir væri mansal ekki þriðja umfangsmesta glæpastarfsemi heims.

Ég brýni því íslensk stjórnvöld til að taka á hinum stóra sínum og innleiða aðgerðaráætlunina með öllu. Um leið brýni ég kaupendur kláms og vændis til að láta af þeirri iðju sinni. Líf og hagur kvenna og barna er í húfi.

Höfundur er borgarfulltrúi.



Skoðun

Sjá meira


×