Innlent

Úrskurðar að vænta í máli Hosmany

Hosmany Ramos
Hosmany Ramos
Dómsmála- og mannréttindaráðuneytið tekur á næstu dögum afstöðu til beiðni yfirvalda í Brasilíu sem vilja að brasilíski lýtalæknirinn Hosmany Ramos verði framseldur til heimalandsins.

Hosmany var tekinn með vegabréf bróður síns á Keflavíkurflugvelli þann 9. ágúst. Hann hefur verið í gæsluvarðhaldi síðan þá. Hosmany var dæmdur í áratuga fangelsisvist þar í Brasilíu fyrir stórfelld fíkniefnamisferli og morð. Hann hefur sótt um hæli hér á landi en Útlendingastofnun hefur ekki tekið afstöðu í málinu.

Framsalsbeiðni barst frá yfirvöldum í Brasilíu í byrjun september. Haukur Guðmundsson, skrifstofustjóri dómsmála- og löggæsluskrifstofu ráðuneytisins, segir að málið sé í ákveðnum farvegi. Hann reiknar með því að meðferð framsalsmálsins verði lokið í næstu viku.

Fallist ráðuneytið á beiðni brasilískra yfirvalda getur Hosmany borið þá ákvörðun undir dómstóla áður en af framsali verður.


Tengdar fréttir

Enn beðið eftir framsalsgögnum vegna Ramos

Smári Sigurðsson yfirmaður alþjóðadeildar Ríkislögreglustjóra segir að viðeigandi gögn vegna framsals á Brasilíska lýtalækninum Hosmany Ramos sem handtekinn var hér á landi hafi ekki enn borist. Yfirvöld í Brasilíu hafa staðfest að þau muni krefjast framsals á Ramos en hann var dæmdur í þrjátíu daga fangelsi hér á landi. Ramos mun losna úr haldi þann 11.september.

Framsalsgögnin komin - farið fram á gæsluvarðhald í dag

Dómsmálaráðuneytinu hafa borist framsalsgögn frá brasilískum stjórnvöldum vegna lýtalæknisins Hosmany Ramos sem handtekinn var hér á landi um miðjan ágúst. Að sögn Hilmars Ingimundarsonar lögmanns Ramos verður gæsluvarðhalds krafist yfir honum síðar í dag. Ramos var dæmdur í 30 daga fangelsi þegar hann framvísaði vegabréfi bróður síns í Leifsstöð og lýkur afplánun þess dóms á morgun.

Brasilískur flóttamaður frjáls eftir viku

Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði kröfu lögreglustjórans í Reykjavík að brasilíski flóttamaðurinn Hosmany Ramos yrði úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir að hann lyki 30 daga afplánun sem hann hlaut fyrir að ferðast til Íslands á vegabréfi bróður síns.

Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðahald yfir Hosmany

Hæstiréttur Íslands staðfesti gæsluvarðhaldsúrskurð yfir brasilíska lýtalækninum Ramos Hosmany en hann kom hingað til lands í ágúst á vegabréfi bróður síns. Hann var að koma frá Noregi og á leiðinni til Kanada þegar tollgæslan stöðvaði för hans. Ramos var í kjölfarið dæmdur í 30 daga fangelsi hér á landi fyrir að framvísu vitlausu vegabréfi.

Ramos úrskurðaður í þriggja vikna gæsluvarðhald

Brasilíski flóttamaðurinn Hosmany Ramos var í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun úrskurðaður í þriggja vikna gæsluvarðhald um leið og hann lauk 30 daga afplánun. Fangelsisdóminn hlaut hann fyrir að ferðast til Íslands á vegabréfi bróður síns. Brasilísk stjórnvöld hafa farið fram á að Ramos verði framseldur til Brasilíu.

Frægasti glæpamaður Brasilíu handtekinn á Íslandi

Einn þekktasti glæpamaður Brasilíu, lýtalæknirinn Hosmany Ramos, situr nú í gæsluvarðhaldi á Íslandi en hann var tekinn með falskt vegabréf á Keflavíkurflugvelli þann 9. ágúst. Hann er eftirlýstur í Brasilíu eftir að hafa fengið heimfararleyfi yfir jólahátíðina síðustu og ekki snúið aftur.

Brasilíski glæpamaðurinn sækir um hæli á Íslandi

Brasilíumaður sem handtekinn var á Leifsstöð fyrir helgi og er eftirlýstur fyrir margvíslega glæpi í heimlandi sínu, ætlar að fara fram á pólitískt hæli á Íslandi. Hann segist óttast um líf sitt í Brasilíu og biðlar til íslenskra stjórnvalda að sýna máli sýnu skilning.

Brasilískur dómsmálaráðherra vill til Íslands út af glæpamanni

Brasilíski dómsmálaráðherrann, Romeu Tuma Junior sagði í þarlendum fjölmiðlum að hann væri tilbúinn til þess að koma til Íslands ef það liðkaði fyrir framsali lýtalæknisins Hosmany Ramos sem var handtekinn á Leifsstöð fyrir um viku síðan.

Hosmany áfram í gæsluvarðhaldi

„Gæsluvarðhaldið er endalaust framlengt,“ segir Hilmar Ingimundarson, lögmaður brasilíska lýtalæknisins Hosmany Ramos. Gæsluvarðhaldsúrskurður yfir Hosmany var framlengdur um tvær vikur í dag eins og heimilt er, að sögn Hilmars.

Hosmany áfram í haldi

Hæstiréttur Íslands staðfesti gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Brasilíumanninum Ramos Hosmany en hann hefur verið í haldi síðan hann kom til landsins í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×