Golf

Daly í hálfs árs bann

Elvar Geir Magnússon skrifar
Daly er ansi sérstakur maður.
Daly er ansi sérstakur maður.

John Daly, skrautlegasti kylfingur heims, hefur verið dæmdur í sex mánaða keppnisbann af aganefnd PGA. Nefndin telur Daly hafa skaðað ímynd golfsins.

Daly var handtekinn vegna ölvunar á almannafæri í október en hann komst alls fjórum sinnum í kast við lögin á árinu 2008. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hann er dæmdur í bann en árið 1994 fékk hann tólf móta bann.

Daly hefur ekki leikið af viti á PGA-mótaröðinni síðustu tvö ár. Hann endaði í 232. sæti á peningalista PGA fyrir árið 2008.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×