Formúla 1

Brawn bjartsýnn fyrir Mónakó

Formúlu 1 bílar þeysa um höfnina í Mónakó og listisnekkjur ríka fólksins fylla höfnina.
Formúlu 1 bílar þeysa um höfnina í Mónakó og listisnekkjur ríka fólksins fylla höfnina. Mynd: Getty Images

 

Ross Brawn, framkvæmdarstjóri Brawn liðsins er bjartsýnn fyrir Mónakó kappaksturinn um næstu helgi. Lið hans leiðir meistarakeppni ökumanna og bílasmiða, en mótið í Mónakó er það sjötta á árinu.

 

Brawn liðið hefur unnið 4 mót af 5 á árinu, en 17 mót fara fram. Bretinn Lewis Hamilton vann keppnina í Mónakó í fyrra í grenjandi rigningu.

Keppnin á götum Mónakó er mjög vinsæl í sjónvarpi, þrátt fyrir að keppnin sé sú hægasta á árinu. Ákveðinn sjarmi hvílir yfir mótshaldinu og kvikmyndastjörnur mæta á svæðið frá kvikmyndahátiðinni í Cannes.

"Mótið er mjög sérstakt og óútreiknanlegt og menn verða að halda vöku sinni. Það er lítið pláss til að athafna sig, hvort sem um ræðir þjónustusvæðin eða brautina sjálfa. Þetta er stressandi mót", sagði Brawn.

"Það má engin mistök gera í akstri, hvort sem um ræðir æfingar, tímatöku eða keppni. Það gerir keppnina svo spennandi. Ég tel að bílar okkar muni virka vel í Mónakó, þar sem brautin er krókótt og bíllinn lætur vel af stjórn."

"Bæði Jenson Button og Rubens Barrichello eru nákvæmir ökumenn og markmið beggja verður að reyna að ná sem fremstum stað á ráslínu. Það er lykill að góðum árangri í Mónakó", sagði Brawn.

Sérstakur upphitunarþáttur verður fyrir Mónakó kappaksturinn á Stöð 2 Sport á fimmtudagskvöld kl. 20.00 og sýnt verður frá æfingum strax að honum loknum.

Sjá brautarlýsingu frá Mónalkó




Fleiri fréttir

Sjá meira


×