Golf

Tiger Woods ekki sá eini í vandræðum

Arnar Björnsson skrifar
Thomas Björn og Tiger Woods.
Thomas Björn og Tiger Woods. Mynd/AFP
Tiger Woods er ekki eini kylfingurinn sem á í vandræðum í einkalífinu. Daninn Thomas Björn bíður úrskurðar dómstóls í Ástralíu hvort hann er faðir stúlku sem fæddist i mars.

Sá danski hefur neitað að faðerninu en Se og Hör í Danmörku segir að Thomas Björn hafi í 5 ár átt í sambandi við ástralska konu sem hann á að hafa hitt í Dubai. Thomas Björn er kvæntur og á 3 börn. Hann á það sameiginlegt með Tiger Woods að kona hans er sænsk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×