Fótbolti

Del Piero íhugar að fara í mál við Facebook

Alessandro Del Piero
Alessandro Del Piero AFP

Ítalski knattspyrnumaðurinn Alessandro Del Piero hjá Juventus er sagður íhuga að fara í mál við samskiptavefinn vinsæla Facebook eftir að síða með nasistaáróðri í hans nafni var stofnuð á netinu.

Del Piero vill gjarnan vernda flekklausa ímynd sína og kærir sig ekki um að vera orðaður við nasistaáróður, enda hafi hann aldrei stofnað Facebook-síðu.

Það var ANSA sem greindi frá þessu, en bróðir knattspyrnumannsins og umboðsmaður, Stefano, mun hafa leitað til lögmanna vegna þessa leiðindamáls.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×