Handbolti

Umfjöllun: Valur fór illa með HK í seinni hálfleiknum

Elvar Geir Magnússon skrifar
Fannar Friðgeirsson átti góðan leik í Valsliðinu í kvöld.
Fannar Friðgeirsson átti góðan leik í Valsliðinu í kvöld.

Valsmenn eru áfram í efsta sæti N1-deildar karla eftir að hafa unnið útisigur á HK í Digranesi í kvöld. Úrslitin urðu 20-24 eftir að staðan í hálfleik var 10-11.

Sóknarleikur Vals í fyrri hálfleiknum var hreint út sagt mjög dapur en HK-ingar voru að spila fína vörn. Heimamenn náðu mest þriggja marka forystu en á lokamínútum fyrri hálfleiksins hrundi sóknarleikur þeirra og Valsmenn gengu á lagið.

Sóknarleikur Vals var skömminni skárri í seinni hálfleiknum en um miðjan hálfleikinni sigldu þeir örugglega fram úr. HK gerði mörg dýrkeypt mistök í sókninni og gestirnir nýttu sér það með banvænum hraðaupphlaupum.

Valur reyndist sterkari á lokakaflanum og innbyrti að lokum fjögurra marka sigur sem heldur liðinu í efsta sæti deildarinnar. Fannar Friðgeirsson átti mjög góðan leik og var markahæstur Valsmanna en tölfræði leiksins má annars sjá hér að neðan.

HK – Valur 20-24 (10-11)



Mörk HK (skot): Valdimar F. Þórsson 5/1 (11/2), Bjarki M. Gunnarsson 4 (4), Vilhelm Gauti Bergsveinsson 3 (3), Hákon Bridde 2 (2),Atli Æ. Ingólfsson 2 (5), Ragnar Hjaltested 2/0 (4/1), Sverrir Hermannsson 2 (7), Ólafur Víðir Ólafsson 0 (1)

Varin skot: Sveinbjörn Pétursson 14, Lárus Ólafsson 2

Hraðaupphlaupsmörk: 6 (Bjarki 3, Atli, Ragnar, Hákon)

Fiskuð víti: 3 (Bjarki, Sverrir, Hákon)

Utan vallar: 2 mín.

Mörk Vals (skot): Fannar Friðgeirsson 7 (8), Arnór Þ. Gunnarsson 6 (13), Ernir H. Arnarsson 4 (8), Elvar Friðriksson 3/3 (8/3), Ingvar Árnason 2 (3), Gunnar I. Jóhannsson 1 (4), Sigfús Páll Sigfússon 1 (4), Orri Freyr Gíslason 0 (2), Atli Már Báruson 0 (1)

Varin skot: Hlynur Morthens 15/1

Hraðaupphlaupsmörk: 7 (Fannar 4, Arnór 2, Gunnar)

Fiskuð víti: 3 (Orri 2, Fannar)

Utan vallar: 6 mín.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×