Viðskipti erlent

Seðlabanki Svíþjóðar refsar bönkum fyrir að lána ekki

Seðlabanki Svíþjóðar (Riksbanken) ákvað í morgun að innlánsvextir sínir yrðu mínus 0,25%. Þannig ætlar hann að hvetja banka landsins til að veita meira af lánsfé út til almennings og atvinnulífs landsins og refsa þeim fyrir að geyma fé sitt inn á reikningum Riksbanken.

Þetta var tilkynnt samhliða því að Riksbanken lækkaði stýrivexti sína úr 0,5% og í 0,25%. Riksbanken mun í framhaldinu veita lán til bankanna í Svíþjóð upp að 100 milljörðum sænskra kr. eða rúmlega 1.600 milljarða kr. á föstum vöxtum til 12 mánaða.

Hvað varðar neikvæða innlánsvexti Riksbanken segir Roger Josefsson aðalhagfræðingur Danske Bank í Svíþjóð að þetta sé einstæð og glæsileg lausn hjá bankanum. Þetta kemur fram í viðtali við Josefsson á vefsíðunni di.se.

„Skilaboðin frá Riksbanken eru skýr," segir Josefsson. „Hann vill ekki að bankarnir liggi inni með peninga hjá sér yfir nóttina. Peningarnir eiga að fara út í atvinnulífið...Slíkt ætti að leysa þann lausafjárskort sem nú er á markaðinum."

Robert Bergquist aðalhagfræðingur SEB er sammála Josefsson og segir að um góða niðurstöðu sé að ræða.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×