Viðskipti erlent

Hagnast á skortsölu

Alan greenspan Fyrrverandi seðlabankastjóri Bandaríkjanna situr í ráðgjafanefnd vogunarsjóðs sem hefur hagnast vel á skortsölu á breskum bönkum upp á síðkastið. Markaðurinn/AFP
Alan greenspan Fyrrverandi seðlabankastjóri Bandaríkjanna situr í ráðgjafanefnd vogunarsjóðs sem hefur hagnast vel á skortsölu á breskum bönkum upp á síðkastið. Markaðurinn/AFP

Bandaríski vogunarsjóðurinn Paulson & Co, hefur hagnast um 295 milljónir punda, jafnvirði 50 milljarða króna, með skortsölu á hlutabréfum í Royal Bank of Scotland frá í september í fyrra.

Sjóðurinn hefur sömuleiðis hagnast vel á sölu bréfa bresku bankanna Barclays og Lloyds, að sögn breska viðskiptadagblaðsins Financial Times.

Skortsölur voru gagnrýndar í aðdraganda fjármálakreppunnar enda talið að þær gætu valdið fyrirtækjum sem urðu fyrir barðinu á þeim óheyrilegu tjóni. Í kjölfarið voru skortsölur bannaðar beggja vegna Atlantsála. Bannið nær til nýrra viðskipta en ekki þeirra samninga sem voru í gildi þegar það var sett á, líkt og í tilviki Paulson & Co.

Alan Greenspan, fyrrverandi seðlabankastjóri Bandaríkjanna, sem margir telja ábyrgan fyrir fjármálakreppunni, settist í ráðgjafanefnd sjóðsins um mitt síðasta ár.

Sjóðurinn tengist Íslandi óbeint en hann var ráðandi hluthafi í hollensku iðnsamsteypunni Stork þegar Eyrir Invest, Marel og Landsbankinn hófu vinnu við yfirtöku hennar árið 2006.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×