Innlent

Rafræn kjörskrá í Reykjavík á netinu

Opnað hefur verið fyrir rafrænan aðgang að kjörskrá í Reykjavíkurkjördæmunum vegna alþingiskosninga 2009. Í kjörskránni er hægt að slá inn kennitölu eða nafn og heimilisfang kjósanda og fá þannig upplýsingar um hvoru kjördæmi kjósandi tilheyrir, á hvaða kjörstað hann á að kjósa og í hvaða kjördeild.

Farið er inn í grunnin af forsíðu vefs Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is.

„Hér er um að ræða einfalda leið fyrir borgarbúa til að nálgast upplýsingar um hvar þeir eigi að kjósa og í hvaða kjördeild," segir í tilkynningu frá borginni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×