Formúla 1

Kristján Einar keppir í Valencia

Kristján Einar í bílskúrnum á nýja ökutæki sínu sem hann keppir á í Valencia á sunnudag.
Kristján Einar í bílskúrnum á nýja ökutæki sínu sem hann keppir á í Valencia á sunnudag.

Kristján Einar Kristjánsson hefur náð samkomulagi við kostendur og Formúlu 3 liðið West Tec um að keppa í opnu Formúlu 3 mótaröðinni sem er ný mótaröð sem fer að stórum hluta fram á Spáni. Kristján keppir á sunnudag í fyrsta mótinu á braut í Valencia.

"Þótt þessi mótaröð keppi á samskonar bílum og ég ók í Bretlandi í fyrra, þá er uppsetningin í keppni og tímatökum frábrugðin bresku F3", sagði Kristján Einar sem ók í breska meistaramótinu í fyrra.

"Kappakstur er kostnaðarsöm íþrótt og við sjáum þriðjung og hátt í helmings afföll af bílum í mörgum mótaröðun. Hér eru 22 bílar núna, en voru 34 í fyrra og í Bresku F3 eru 23 bílar en voru 36 í fyrra og svo mætti áfram telja. En við náðum að fjármagna fyrri hluta tímabilsins og fyrst að það tókst það er full ástæða til að senda út þau skilaboð að gefast ekki upp - það leynast tækifæri og ljóstýrur í myrkrinu ef maður bara leitar nógu lengi og gefst aldrei upp."

Sjá meira um málið






Fleiri fréttir

Sjá meira


×