Formúla 1

Nýtt Formúlu 1 mót í Abu Dhabi

Formleg kynning á mótssvæðinu í Abu Dhabi, en hönnuður svæðisins er Hermann Tilke.
Formleg kynning á mótssvæðinu í Abu Dhabi, en hönnuður svæðisins er Hermann Tilke. Mynd: Kappakstur.is

Á þessu ári verða 17 Formúlu 1 mót á dagskrá FIA í stað 18 á síðasta ári. Mót í Kanada og Frakklandi falla út, en nýtt mót í Abu Dhabi í Mið-Austurlöndum kemur inn í staðinn.

Hermann Tilke er yfirhönnuður brautinnar í Abu Dahbi og hann fékk frítt spil við hönnunina. Brautin er 5.6 km löng og 10 metra breið og reiknað með að meðalhraðinn verði 198 km á klukkustund. Í tölvulíkönum er gert ráð fyrir að 3 staðir verði til framúraksturs.

Brautin liggur um götur, tilbúið mótssvæði og höfn. Gert er ráði fyrir plássi fyrir 150 skútum, þar af 20 skútum sem eru 100 fet að lengd, en venjuleg skúta er 20-30 fet. Mótshaldarar eru með 15.000 manna starfslið við uppbyggingu brautarinnar.

Búið er að byggja Ferrari skemmtigarð í Abu Dhabi, þar sem fólk getur tekið þátt í alskyns aksturs ævintýrum. Þá verða skipulagðar ferðir á jeppum í eyðimörkina í næsta nágrenni.

Mikil vinna hefur verið lögð í að gera Abu Dhabi ferðamannavænt og sjö stjörnu hótel, glæsilegir golfvellir og baðstrendur eru meðal þess sem á að heilla ferðamenn.

Sjá nánar um nýja mótssvæðið




Fleiri fréttir

Sjá meira


×