Viðskipti erlent

Þjóðverjar segja Grikki verða að bjarga sér sjálfir

Óli Tynes skrifar
Grikkir fá snjókaldar kveðjur frá Þjóðverjum.
Grikkir fá snjókaldar kveðjur frá Þjóðverjum.

Sextán af tuttugu og sjö ríkjum Evrópusambandsins hafa tekið upp evru sem gjaldmiðil. Raunir Grikklands eru fyrsta alvarlega áhlaupsprófið sem evruríkin hafa staðið frammifyrir.

Þær hafa minnkað traust á myntinni og evran hefur fallið í verði gagnvart dollaranum. Fyrir helgi virtist sem hin evruríkin ætluðu að koma Grikklandi til hjálpar.

Ríki utan evrusvæðisins tóku það hinsvegar ekki í mál. Alastair Darling fjármálaráðherra Bretlands sagði til dæmis að þeir hefðu engan áhuga á að ausa fé í Grikkland.

Það gæti einnig orðið niðurstaða evruríkjanna. Talsmaður þýska fjármálaráðuneytisins, Michael Offer sagði í gærkvöldi að ekki yrði settur upp sjóður til þess að aðstoða evruríki sérstaklega.

Hann sagði að ekki yrði komist hjá sársaukafullum niðurskurði í Grikklandi. Landið yrði að minnka fjárlagahalla sinn um fjögur prósentustig á þessu ári og koma honum niður í þrjú prósent af landsframleiðslu fyrir 2012.

Það er í takt við skilyrðin fyrir því að lönd fái að taka yfirleitt þátt í myntbandalaginu.

Þýska stjórnin hefur ríkan stuðning fyrir þessari stefnu meðal þegna sinna.

Mikill meirihluti þjóðarinnar er andvígur því að rétta Grikkjum hjálparhönd. Fimmtíu og þrjú prósent landsmanna vilja frekar reka Grikkland úr myntbandalaginu.

Önnur ríki hafa meiri samúð með Grikkjum og á fundi sem nú stendur yfir er nú reynt að leysa þennan vanda.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×