Fótbolti

Félagi Gylfa á leiðinni til FC Bayern

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Gylfi og félagar þurfa að sjá á bak Gustavo.
Gylfi og félagar þurfa að sjá á bak Gustavo.

Gylfi Þór Sigurðsson mun ekki leika áfram með brasilíska miðjumanninum Luiz Gustavo hjá Hoffenheim á næstu leiktíð því hann verður seldur til FC Bayern.

Gustavo hefur farið mikinn með Hoffenheim í vetur og verið orðaður við fjölda félaga.

"Það er klárt að Luiz Gustavo fer til Bayern næsta sumar. Það væri ósanngjarnt af okkur að leyfa honum ekki að fara," sagði Dietmar Hopp, eigandi Hoffenheim.

Gustavo fær ekki að fara frá félaginu í janúar og mun klára tímabilið með Hoffenheim þó svo hann vilji sjálfur fara í janúar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×