Lífið

Rihanna drifin á spítala

Rihanna beit á jaxlinn og hélt ferðinni áfram.
Rihanna beit á jaxlinn og hélt ferðinni áfram.
Söngkonan Rihanna var drifin á spítala í Sviss eftir tónleika á mánudagskvöld. Í ljós kom að hún hafði brákað rifbein á tónleikunum.

Rihanna beit á jaxlinn og kom fram á tónleikum í Frakklandi kvöldið eftir. Hún er þessa dagana á seinni hluta tónleikaferðarinnar sinnar sem hefur fengið feiknagóðar viðtökur út um allan heim. Sjálf segist hún mjög stolt af tónleikunum þar sem hún skiptir sífellt um búning og dansar eins og hún eigi lífið að leysa. Hér fyrir neðan eru myndir af tónleikum fyrr í vetur.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.