Fótbolti

Robben tryggði Bayern sæti í bikarúrslitaleiknum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Arjen Robben hefur skorað mikilvæg mörk fyrir Bayern að undanförnu.
Arjen Robben hefur skorað mikilvæg mörk fyrir Bayern að undanförnu. Mynd/AFP
Hollendingurinn Arjen Robben skoraði eina mark leiksins í framlengingu þegar Bayern Munchen tryggði sér sæti í bikarúrslitaleiknum í Þýskalandi með 1-0 sigri á Schalke í kvöld. Bayern komst þar með í bikarúrslitaleikinn í sautjánda sinn.

„Ég tel að við höfum verið betra liðið í kvöld og við vorum ferskari í framlengingunni," sagði Arjen Robben sem skoraði markið sitt á 112. mínútu eftir að hafa sloppið í gegn á hægri vængnum.

Bayern Munchen mætir Werder Bremen í úrslitaleiknum sem fer fram 15. maí í Berlín og enn möguleika á því að vinna þrennuna á þessu tímabili.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×