Viðskipti innlent

Frumtak fjárfestir í Gogogic

Frá undirskrift samningsins. Efri röð frá vinstri: Ólafur Andri Ragnarsson, Íris Kristín Andrésdóttir og Svana Gunnarsdóttir
Neðri röð frá vinstri: Sigurður Eggert Gunnarsson, Jónas B.Antonsson, Eggert Claessen, Helga Valfells og Guðmundur Bjargmundsson
Frá undirskrift samningsins. Efri röð frá vinstri: Ólafur Andri Ragnarsson, Íris Kristín Andrésdóttir og Svana Gunnarsdóttir Neðri röð frá vinstri: Sigurður Eggert Gunnarsson, Jónas B.Antonsson, Eggert Claessen, Helga Valfells og Guðmundur Bjargmundsson

Frumtak hefur fest kaup á hlut í Gogogic ehf sem var stofnað árið 2006 til að þróa tölvuleiki. Gogogic sérhæfir sig í frumlegri leikjahönnun, gerð smærri tölvuleikja og framleiðslu margmiðlunarefnis fyrir vefinn. Einnig sinnir fyrirtækið hugmyndasmíði og markaðsmálum fyrir viðskiptavini sína. Kaupin nema alls 150 milljónum króna.

„Gogogic er í hópi stærstu leikjafyrirtækja á Íslandi og því áhugaverður fjárfestingakostur fyrir Frumtak" segir dr. Eggert Claessen, framkvæmdastjóri Frumtaks. „Gogogic hefur náð frábærum árangri í framleiðslu og hönnun tölvuleikja ásamt því að vera í fararbroddi nýrra samtaka fyrirtækja í íslenskum leikjaiðnaði. Við væntum mikils af fyrirtækinu og það verður sérstaklega áhugavert að sjá það ná árangri í að selja leiki sína en þeir hafa hlotið góða dóma og viðurkenningar. Þarna eru mikil tækifæri sem hægt er að nýta með því fjármagni sem fyrirtækið hefur fengið með aðkomu Frumtaks".

„Það er ljóst að aðkoma Frumtaks mun gera félaginu kleift að láta reyna almennilega á vörur sínar á markaði, byggja upp þær pípur sem þarf til erlendrar markaðssetningar og koma leikjum fyrirtækisins almennilega á framfæri. Einnig er þetta stuðningur við frekari leikjaþróun og þá felst í því töluverð viðurkenning, að fá Frumtak að borðinu á þessum tíma ", sagði Jónas Antonsson, framkvæmdastjóri Gogogic.

Frumtak er samlagssjóður í eigu Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, sex af stærstu lífeyris­sjóðum landsins og þriggja banka. Frumtak fjárfestir í nýsköpunar­fyrirtækjum sem þykja vænleg til vaxtar og útrásar. Markmið Frumtaks er að byggja upp öflug fyrirtæki sem geta verið leiðandi á sínu sviði og um leið skilað góðri ávöxtun til fjárfesta. Frumtak fjárfestir í fyrirtækjum sem eru komin af klakstigi og er áskilið að fyrir liggi ítarlegar viðskiptaáætlanir.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×