Viðskipti innlent

Karen inn fyrir Þórarin

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Karen hefur starfað hjá Seðlabankanum í tæpa tvo áratugi.
Karen hefur starfað hjá Seðlabankanum í tæpa tvo áratugi. vísir/vilhelm

Karen Áslaug Vignisdóttir hefur verið sett aðalhagfræðingur og framkvæmdastjóri sviðs hagfræði og peningastefnu hjá Seðlabanka Íslands. Þetta kemur fram á vef bankans.

Karen tekur við starfinu af Þórarni G. Péturssyni sem á dögunum var skipaður varaseðlabankastjóri.

Karen hóf störf hjá Seðlabankanum árið 2006 sem hagfræðingur og hefur gegnt stöðu forstöðumanns greiningar og útgáfu á sviði hagfræði og peningastefnu síðan árið 2018. Á þeim tíma hefur hún einnig verið staðgengill aðalhagfræðings bankans og gegnt hlutverki ritara peningastefnunefndar. 

Karen er með meistarapróf í hagfræði frá háskólanum í Árósum í Danmörku frá árinu 2005 en hún lauk grunnnámi í hagfræði frá Háskóla Íslands árið 2003.


Tengdar fréttir

Nýskipaður varaseðlabankastjóri peningastefnu

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur skipað Þórarin G. Pétursson í embætti varaseðlabankastjóra peningastefnu til fimm ára frá og með deginum í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×