Viðskipti erlent

Buiter: Grikkland í gjaldþrot ef betri kjör fást ekki

„Ef höfð eru í huga þau kjör sem í boði eru, frá öðrum evrulöndum og frá markaðinum, er verulegt tap fjárfesta eða jafnvel formlegt gjaldþrot líklegra," segir Buiter
„Ef höfð eru í huga þau kjör sem í boði eru, frá öðrum evrulöndum og frá markaðinum, er verulegt tap fjárfesta eða jafnvel formlegt gjaldþrot líklegra," segir Buiter
Íslandsvinurinn Willem Buiter aðalhagfræðingur Citigroup segir að Grikkland fari líklega í þjóðargjaldþrot eða skapi eigendum ríkisskuldabréfa sinna verulegt tjón nema landið fái betri kjör á fyrirhuguð björgunarpakka ESB og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS).

Fjallað er um málið á Bloomberg fréttaveitunni. Staða Grikklands er ekki beysin í augnablikinu. Ávöxtunarkrafan á 2ja ára ríkisskuldabréfum landsins er komin yfir 14% og skuldatryggingaálið er rokið upp í 724 punkta samkvæmt CMA gagnaveitunni. Sem stendur er Grikkland á toppi lista þeirra 10 þjóða sem CMA metur í mestri hættu á þjóðargjaldþroti. Líkurnar eru taldar rúmlega 46% á slíku.

Grikkland hefur farið fram á að björgunarpakki ESB/AGS upp á 45 milljarða evra verð gangsettur strax en Þjóðverjar þráast við. Buiter segir að Grikkland komist hugsanleg hjá gjaldþroti ef landið fær betri kjör á fjármögnun sinni en þau 3% til 4% yfir viðmiðunarvöxtum sem í boði eru.

„Ef höfð eru í huga þau kjör sem í boði eru, frá öðrum evrulöndum og frá markaðinum, er verulegt tap fjárfesta eða jafnvel formlegt gjaldþrot líklegra," segir Buiter sem er fyrrum meðlimur peningastefnunefndar Englandsbanka.

Fram kemur í máli Buiter að gjaldþrot Grikklands myndi skaða banka á evrusvæðinu þar sem eftirlitsaðilum hafi mistekist að koma í veg fyrir verulega áhættu á lánveitingum þeirra til Grikklands og áhættu af skuldasöfnun hins opinbera þar í landi.

Hvað skaða þeirra sem eiga grísk ríkisskuldabréf varðar segir Buiter að sennilega þurfi þeir að gefa eftir 20% af kröfum sínum, „eða í versta falli allt að 30%". Verði þetta niðurstaðan mætti komast hjá formlegu gjaldþroti.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×