Leikjavísir

IBM kynnir nýjan öflugan og orkusparandi örgjörva

Alþjóðlegi upplýsingatæknirisinn IBM mun á morgun, fimmtudag, kynna fyrir íslenskum upplýsingatækniiðnaði IBM POWER7 örgjörvann sem er einn allra öflugasti örgjörvi heims nú um stundir miðað við afkastagetu.

Í tilkynningu segir að kynningin er í samvinnu við upplýsingatæknifélögin Nýherja og Skyggni. IBM POWER örgjörvar keyra lausnir í viðskiptalífinu ásamt því að stjórna ýmsum tækjum sem eru hluti af okkar daglega lífi svo sem bifreiðum, rafmagnstækjum og leikjatölvum. Má þar nefna PlayStation 3 og Xbox 360 leikjavélar, AEG heimilistæki og Ford bifreiðar.

Þá var frægt þegar Deep Blue ofurtölva IBM, sem keyrði IBM POWER örgjörva, háði einvígi við Garry Kasparov, fyrrverandi heimsmeistara í skák á árunum 1996 og 1997. Kasparov vann fyrra einvígið 4-2 en Deep Blue vann það síðara 3½-2½. IBM POWER örgjörvi er notaður í mörgum af stærstu ofurtölvum heimsins í dag, svokölluðum IBM Blue Gene.

Þrátt fyrir aukin afköst eyðir POWER7 örgjörvinn mun minni orku en sambærilegir örgjörvar. Vélar sem keyra á POWER7 örgjörva hafa til dæmis tvöfalt til fjórfalt meiri afköst á orkueiningu.

Kynning á IBM POWER7 örgjörvanum fer fram í Akóges salnum í Lágmúla 4, fimmtudaginn 4. mars. Þar verður einnig sagt frá nýrri kynslóð IBM Power Systems netþjóna og nýjungum í IBM stýrikerfum. Frítt er inn á kynninguna en skráning fer fram vef Nýherja.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.