Viðskipti erlent

Glazer hafnaði 290 milljarða tilboði í Manchester United

Samkvæmt tímaritinu Forbes er verðmæti liðsins áætlað vera í kringum 1,2 milljarða punda.
Samkvæmt tímaritinu Forbes er verðmæti liðsins áætlað vera í kringum 1,2 milljarða punda.
Glazer fjölskyldan hefur hafnað 1,5 milljarða punda eða 290 milljarða kr. tilboði í enska úrvalsdeildarliðið Manchester United. Það var hópur fjárfesta frá Mið-Austurlöndum sem lagði tilboðið fram.

Glazer fjölskyldan hefur áður fengið nokkur tilboð í liðið, þar á meðal frá hópi sem kallar sig Rauðu riddarana og samanstendur af aðdáendum Manchester United. Þeir rauðu lögðu fram tilboð upp á 800 milljónir punda sem Glazer fannst alltof lág upphæð. Önnur tilboð sem borist hafa eru í kringum einn milljarða punda.

Samkvæmt tímaritinu Forbes er verðmæti liðsins áætlað vera í kringum 1,2 milljarða punda.

Samkvæmt fréttum í breskum fjölmiðum hyggst Glazer fjölskyldan eiga Manchester United næsta áratuginn. Fjölskyldan er verulega hötuð af stórum hópi stuðningsmanna liðsins. Sem stendur eru meðlimir The Machester United Support Trust (MUST) orðnir 150.000 talsins en MUST leiðir baráttuna gegn Glazer.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×