Körfubolti

Signý: Þetta verður aftur stál í stál í næsta leik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Signý Hermannsdóttir var með 18 stig, 10 varin skot og 9 fráköst í kvöld.
Signý Hermannsdóttir var með 18 stig, 10 varin skot og 9 fráköst í kvöld. Mynd/Daníel

Signý Hermannsdóttir átti flottan leik með KR í kvöld þegar deildarmeistararnir komust í 2-0 í undanúrslitaeinvígi Iceland Express deildar kvenna í körfubolta með 79-75 sigur á Haukum á Ásvöllum.

„Þetta var mjög mikilvægur sigur því það er alltaf erfitt að spila næsta leik eftir svona stóran sigur," sagði Signý en KR vann frysta leikinn með 31 stigi.

„Við komum svo tilbúnar í fyrsta leikinn og vissum að við yrðum ekki með eins leik í dag. Við komum út svo rosalega brjálaðar í fyrsta leiknum að við yfirspiluðum þær í fyrsta leikhluta. Það setti þær út af laginu þá en núna voru þær tilbúnar í þetta og þá er þetta leikur frá fyrstu mínútu," sagði Signý.

Það var hart tekist á í leiknum og bæði lið voru í miklum villuvandræðum.

„Það var mikil barátta í þessum leik eins og sást á villunum á töflunni. Þetta var bara baráttuleikur og við náðum bara að klára sigurinn í endann," sagði Signý sem lokaði teignum og varði meðal annars 10 skot Haukakvenna í leiknum

„Þær voru ekki að skora inn í teig í kvöld og við náðum að loka vel á það. Stóru stelpurnar þeirra voru líka í villuvandræðum sem hjálpaði til. Þá reyndar tók Sara Pálmadóttir upp á því að setja niður þrjá þrista þannig að það var kannski ekkert betra," sagði Signý í léttum tón.

Haukaliðið byggir mikið á þeim Heather Ezell og Kiki Lund sem skoruðu aðeins 15 stig í fyrsta leiknum en voru með 47 stig saman í kvöld.

„Þær eru rosalega góðar og Heather er með betri könum sem ég hef séð. Það er mikið verk að halda aftur að þeim. Gróa er búin að standa sig vel og þegar hún fór útaf þá kom einhver önnur á hana og stóð sig vel líka sem var alveg frábært," sagði Signý.

„Þetta er alls ekki komið og á föstudaginn býst ég við þeim ekkert öðruvísi en í dag. Þetta verður aftur stál í stál í næsta leik. Við ætlum að reyna að taka þann leik en þær ætla örugglega að reyna að stela einum," sagði Signý að lokum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×