Ætla að hafna tillögu Mannréttindaráðs 27. október 2010 06:00 Formaður mannréttindaráðs segir engar formlegar tillögur að breytingum hafa verið lagðar fram á fundinum í gær. fréttablaðið/anton
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í mannréttindaráði lýsa því yfir að tillaga meirihlutans sé óþarfi og flokkurinn muni greiða atkvæði gegn henni í óbreyttri mynd. Mannréttindaráð fundaði í gær um tillögur að breytingum á samstarfi leik- og grunnskóla og þjóðkirkjunnar. Afgreiðslu málsins var frestað til 3. nóvember. Sjálfstæðisflokkurinn bókaði tillögu á fundinum þar sem segir að vonast sé til þess að með því að fresta tillögunni geri meirihlutinn sér grein fyrir því að skoða þurfi málið betur með vilja borgarbúa að leiðarljósi. „Ein af forsendum tillögu meirihlutans var sú að fjölmargar kvartanir hefðu borist vegna heimsókna trúfélaga í skólana, ekki fylgdu þeirri staðhæfingu neinar tölulegar upplýsingar.“ Samkvæmt upplýsingum frá mannréttindaráði hafa alls borist 52 formlegar kvartanir síðan í ágúst 2008. Þar af snúa 22 að samstarfi kirkju og skóla. Þórey Vilhjálmsdóttir, framkvæmdastjóri borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins, segir botninn vera dottinn úr tillögunni með tilvísuninni í kvartanir foreldra. „Upphaflega var farið af stað þegar talið var að mikið væri um þessar kvartanir, en þessi fjöldi getur ekki talist mjög stórt vandamál,“ segir Þórey. „Mér þykir ólíklegt að tillagan nái fram að ganga í óbreyttri mynd sökum skorts á samstöðu. Það er verið að ganga mjög hart fram.“ Margrét Sverrisdóttir, formaður mannréttindaráðs, segir að engar formlegar tillögur að breytingum hafi verið lagðar fram á fundinum og býst ekki við því að miklar tilfærslur verði gerðar á hugmyndinni. „Kannski munum við aðeins skerpa á orðalagi, en ég á ekki von á efnismiklum breytingum,“ segir hún. Menntamálaráðuneytið lét gera lögfræðiálit á samstarfi þjóðkirkjunnar og grunn- og leikskóla og þar kemur fram að lögmætt sé að kenna trúarbragðafræði sem hluta af námsefni. Telji foreldrar að það eða þátttaka í atburðum og athöfnum fari gegn trúar- eða lífsskoðunum sínum geti þeir sótt um undanþágu fyrir börn sín frá skólaskyldu í slíkum atvikum. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Rafmagn að koma aftur á: Íslendingar lýsa mikilli óvissu Erlent Allt í rugli á Rauðahafi Erlent Mikilvægt að vera betri í bakgarðinum en óvelkomnir gestir Innlent Hafi verið látinn fljúga þrátt fyrir þekkt andleg veikindi Innlent Spennan eykst milli Indlands og Pakistan Erlent Starfsfólk Isavia of smeykt til að taka á kaffistofumálinu Innlent Fólk eigi ekki að breyta sínu daglega lífi vegna frásagna af hópnauðgun Innlent Hvetur Kanadamenn að kjósa sig Erlent Ráðist að fólki við Breiðholtsskóla um hábjartan dag Innlent „Við erum mjög háð rafmagninu“ Innlent Fleiri fréttir Mikilvægt að vera betri í bakgarðinum en óvelkomnir gestir „Við erum mjög háð rafmagninu“ Gyltur gjóta þrettán til sextán grísum í hverju goti Öryggi ógnað og refsingar fyrnist Starfsfólk Isavia of smeykt til að taka á kaffistofumálinu Fólk eigi ekki að breyta sínu daglega lífi vegna frásagna af hópnauðgun Sambandsleysi í suðri og óviðunandi ástand í fangelsum Vilja láta rannsaka aðild flóttateymis í máli Oscars Fangelsi oft eina úrræðið Allt á áætlun en Spánarfarar beðnir um að fylgjast með Björn tekur við af Helga Ráðist að fólki við Breiðholtsskóla um hábjartan dag Um níutíu hælisleitendur setið í fangesli síðustu mánuði fyrir brottvísun Kryfja mál Ásthildar Lóu fyrir opnum tjöldum Saka Ingu um metnaðarleysi eftir skipun flokksmanna í stjórn Engin hópnauðgun um páskana á borði lögreglu Nýtt met slegið í fjölda giftinga Benedikt telur undanbrögð útvarpsstjóra grátleg Vill þyngri refsingar fyrir alvarleg kynferðisbrot Tekur við sem framkvæmdastjóri Bergsins Headspace Hafi verið látinn fljúga þrátt fyrir þekkt andleg veikindi Alþingi kemur saman á ný eftir páskafrí Réðust á tvo menn á göngu Fjölgun safngripa kallar á stækkun Flugsafnsins Hljóðheimur sumarsins í hættu: Mikil fækkun lóu og spóa Höllu dreymir um að fá gróðurhús á Bessastaði Bogi les sinn síðasta fréttatíma á morgun Hælisleitendur í einangrun: Versta úrræðið sem hægt er að beita Geðheilbrigði í fangelsum og fækkun lóu og spóa Áætlun Trump gangi engan veginn upp Sjá meira