Tónlist

Plata Susan Boyle mest seld á síðasta ári

Susan Boyle var söluhæsti tónlistarmaður heimsins árið 2009.
Susan Boyle var söluhæsti tónlistarmaður heimsins árið 2009.
Alþjóðasamtök plötuútgefenda gáfu í dag út tölur um plötusölu ársins 2009. Þar kemur í ljós að plötusala minnkaði um sjö prósent á árinu.

Aftur á móti styrktist markaðurinn í mörgum löndum, þeirra á meðal í Bretlandi. Þá jókst stafræn sala verulega.

Stærsta plata ársins var síðan I Dreamed A Dream, fyrsta plata söngkonunnar Susan Boyle, sem sló eftirminnilega í gegn í hæfileikaþættinum Britain's Got Talent. Hún seldist í 8,3 milljónum eintaka.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.