Lífið

Sandra og barnið spörkuðu Juliu Roberts af forsíðu

Sandra Bullock brást skjótt við þegar hún sá að Life & Style var komið á slóð ættleiðingarinnar.
Sandra Bullock brást skjótt við þegar hún sá að Life & Style var komið á slóð ættleiðingarinnar.
Leikkonan Julia Roberts var valin fallegasta manneskja heims af tímaritinu People nú í vikunni. Þetta er ekkert nýtt hjá People því Julia hefur þrisvar sinnum áður unnið þennan eftirsótta titil.

Í tilefni af þessu var búið að taka flottar myndir af leikkonunni til að hafa á forsíðunni og inni í blaðinu.

Á síðustu stundu hafði Sandra Bullock og hennar fólk samband við tímaritið til að bjóða því að vera fyrst með fréttina um litla barnið sem Sandra hafði ættleidd í auga skilnaðarstormsins sem nú geysar í kringum hana.

Ástæðan fyrir þessu var að tímaritið Life & Style var komið á slóð ættleiðingarinnar. Það er Söndru ekki þóknanlegt þar sem Life & Style sagði fyrst frá fréttum um framhjáhald eiginmannsins Jesse James og skaut málinu af stað.

People brást því skjótt við, henti Juliu Roberts-forsíðunni og stækkaði útgáfu blaðsins. Enginn vissi um þetta og Julia sjálf var ekki látin vita. Hún rak því upp stór augu þegar hún sá tímaritið á miðvikudaginn með nýju forsíðunni.




Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.