Sport

María fékk gull í bekkpressu og setti Íslandsmet

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Íslenski hópurinn á NM. Frá vinstri: María Guðsteinsdóttir, Auðunn Jónsson og Lára Bogey Finnbogadóttir.
Íslenski hópurinn á NM. Frá vinstri: María Guðsteinsdóttir, Auðunn Jónsson og Lára Bogey Finnbogadóttir.

María E. Guðsteinsdóttir úr Kraftlyftingadeild Ármanns heldur áfram að gera það gott á Norðurlandameistaramótinu í kraftlyftingum sem fram fer í Noregi.

María varð í dag Norðurlandameistari í bekkpressu í 75 kg þyngdarflokki. María lyfti 107,5 kg sem er glæsilegt Íslandsmet.

María varð síðan í 8. sæti í stigakeppni í kvennaflokki samkvæmt WILKS-stigatöflu Alþjóða kraftlyftingasambandsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×