Orlando, Memphis og Utah unnu alla leiki á undirbúningstímabilinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. október 2010 17:45 Dwight Howard gat slappað af á bekknum þegar Orlando vann hvern stórsigurinn á fætur öðrum. Mynd/AP
NBA-deildin í körfubolta hefst á morgun og hafa liðin nú lokið undirbúningstímabili sínu þar sem að þau spiluðu fullt af leikjum. Þrjú af þrjátíu liðum tókst að vinna alla leiki sína á undirbúningstímabilinu en það eru Orlando Magic, Memphis Grizzlies og Utah Jazz. Orlando Magic var afar sannfærandi í sínum sjö undirbúningsleikjum sem liðið vann með 25 stiga mun að meðaltali. Orlando hefur reyndar verið óstöðvandi á síðustu undirbúningstímabilum enda hefur liðið unnið 21 undirbúningsleik í röð og ekki tapað á undirbúningstímabilinu síðan árið 2008. Utah Jazz liðið missti marga sterka menn fyrir tímabilið en það virðist ekki há liðinu mikið því strákarnir hans Jerry Sloan unnu alla átta leiki sína á undirbúningstímabilinu. Þetta er í fyrsta sinn sem Utah vinnur alla leiki sína á undirbúningstímabilinu. Þriðja liðið til þess að tapa ekki leik á undirbúningstímabilinu var lið Memphis Grizzlies. Fjórir af leikjunum sjö voru á móti slökum liðum og sá fimmti kom á móti liði utan NBA-deildarinnar þannig að menn eru ekkert að missa sig yfir þessum árangri Memphis-liðsins.Bestu liðin á undirbúningstímabilinu 2010-11: Utah Jazz 8 sigrar - 0 töp Memphis Grizzlies 8 sigrar - 0 töp Orlando Magic 7 sigrar - 0 töp Boston Celtics 7 sigrar - 1 tap Cleveland Cavaliers 6 sigrar - 1 tap Minnesota Timberwolves 6 sigrar - 2 töpVerstu liðin á undirbúningstímabilinu 2010-11: Los Angeles Clippers 1 sigur - 7 töp New Orleans Hornets 1 sigur - 7 töp Phoenix Suns 2 sigrar - 6 töp Atlanta hawks 2 sigrar - 5 töp New Jersey Nets 2 sigrar - 5 töp Philadelphia 76ers 2 sigrar - 5 töp New York Knicks 2 sigrar - 5 töp
NBA Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Íslenski boltinn Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Bragðdauft á Old Trafford Enski boltinn Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Íslenski boltinn „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira