Íslenski boltinn

Úrslit úr Pepsi-deild kvenna - Valsstúlkur á toppnum

Rafnar Orri Gunnarsson skrifar
Valsstúlkur sigruðu Fylki.
Valsstúlkur sigruðu Fylki.
Rétt í þessu var þremur leikjum í Pepsi-deild kvenna að ljúka en Valsstúlkur rétt mörðu Fylki, Breiðabik sigraði Stjörnuna og Afturelding burstaði FH-inga í Mosfellsbænum. Tveir leikir eru enn í gangi en Grindavík og KR eigast við í Grindavík sem og Haukar og Þór/KA en sá leikur hófst nú kl.16 á Ásvöllum. Úrslit og markaskorarar: Valur 1-0 Fylkir: 1-0 Björk Gunnarsdóttir Rautt spjald: Tinna Bjarndís Bergþórsdóttir, Fylkir (’87) Afturelding 4-1 FH: 1-0 Sesselja Valgeirsdóttir 2-0 Telma Þrastardóttir 3-0 Telma Þrastardóttir 3-1 Sigríður Guðmundsdóttir 4-1 Sigríður Þóra Birgisdóttir Breiðablik 2-1 Stjarnan: 0-1 Karen Sturludóttir (’15) 1-1 Hildur Sif Hauksdóttir (’86) 2-1 Hildur Sif Hauksdóttir (’90) Upplýsingar um markaskorara fengnar frá Fótbolta.net.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×