Golf

Ólafía Þórunn jafnaði vallarmet Ragnhildar í Leirunni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafía Þórunn og Rúnar Arnórsson.
Ólafía Þórunn og Rúnar Arnórsson. Mynd/GSÍ
Um helgina fór fram fyrsta keppnishelgi sumarsins í golfinu er keppt var á unglingamótaröð og Áskorendamótaröð Arion banka. Keppt var í Leirunni hjá Golfklúbbi Suðurnesja og á Kirkjubólsvelli í Sandgerði.

Helst bar til tíðinda að Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR, jafnaði tólf ára gamalt vallarmet Ragnhildar Sigurðardóttur er hún lék fyrri hringinn sinn á 70 höggum. Hún sigraði í flokki 17-18 ára stúlkna á samtals 147 höggum.

Í flokki 17-18 ára pilta bar Rúnar Arnórsson, GK, sigur úr býtum en öll úrslit helgarinnar má finna hér að neðan.

Úrslit í flokki stelpna 14 ára og yngri:

1.sæti. Ragnhildur Kristinsdóttir GR, 175 högg

2.sæti. Sara Margrét Hinriksdóttir GK, 182 högg.

3.sæti. Þóra Kristín Ragnarsdóttir GK, 183 högg.

Úrslit í flokki stráka 14 ára og yngri:

1.sæti. Egill Ragnar Gunnarsson GKG, 143 högg.

2.sæti. Birgir Björn Magnússon GK, 145 högg.

3.sæti. Kristinn Reyr Sigurðsson GR, 151 högg.

Úrslit í flokki telpna 15-16 ára:

1.sæti. Sunna Víðisdóttir GR, 155 högg, eftir bráðabana

2.sæti. Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK, 155 högg.

3.sæti. Anna Sólveig Snorradóttir GK, 157 högg

Úrslit í flokki drengja 16-17 ára:

1.sæti. Benidikt Sveinsson GK, 145 högg.

2.sæti. Daði Laxdal Gautason GK, 149 högg.

3.sæti. Bogi Ísak Bogason GR, 150 högg.

Úrslit í flokki stúlkna 17-18 ára:

1.sæti. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir GR, 147 högg.

2.sæti. Karen Guðnadóttir GS, 153 högg.

3.sæti. Jódís Bóasdóttir GK, 158 högg.



Úrslit í flokki pilta 17-18 ára
:

1.sæti. Rúnar Arnórsson GK, 139 högg.

2.sæti. Guðmundur Ágúst Kristjánsson GR, 141 högg.

3.sæti. Dagur Ebenezerson GK, 144 högg.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×