Fótbolti

Áfram skortur á mörkum hjá Bayern í þýsku deildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Thomas Muller í leiknum í kvöld.
Thomas Muller í leiknum í kvöld. Mynd/Nordic Photos/Bongarts
Hamburger SV og Bayern München gerðu markalaust jafntefli í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld og eru Þýskalandsmeistarar Bayern München því bara í 9. sæti og aðeins búnir að skora átta mörk í fyrstu níu leikjum sínum.

Þetta var fimmti leikur tímabilsins þar sem liðsmönnum Bayern München tekst ekki að skora í þýsku deildinni í vetur en aðeins Köln er búin að skoða færri mörk í deildinni. Það sem vekur furðu varðandi það er að allir framherjar þýska landsliðsins spila með þessum tveimur liðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×