Innlent

Gunnfríður aðstoðar Jón Bjarnason

Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir.
Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir.

Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ráðið Gunnfríði Elínu Hreiðarsdóttur í starf aðstoðarmanns ráðherra. Í tilkynningu segir að hún hafi þegar hafið störf.

Gunnfríður Elín er búfræðingur að mennt með meistaragráðu í erfða- og kynbótafræðum frá Landbúnaðarháskólanum í Kaupmannahöfn. Hún hefur frá árinu 2007 starfað sem nautgriparæktarráðunautur Bændasamtaka Íslands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×