Fótbolti

Van Nistelrooy gæti hætt eftir tímabilið

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Bongarts

Ruud van Nistelrooy segir að það komi til greina að núverandi tímabil verði hans síðasta á ferlinum.

Van Nistelrooy er 34 ára gamall og er á mála hjá Hamburg í Þýskalandi. Þar er liðið í fimmta sæti deildarinnar. Nistelrooy hefur skorað sex mörk á tímabilinu, þar af þrennu í bikarleik.

„Ég er ekki með neinar langtímaáætlanir lengur. Ég verð að hlusta á líkamann og get því ekki sagt nú hvort að ég geti spilað árið 2012. Ég tek eitt ár fyrir í einu og ákveð svo hvort ég haldi áfram. Markmið mitt er að spila vel á tímabilinu."

„Kannski held ég áfram og kannski ekki. Það væri gaman ef Hamburg kæmist í Meistaradeildina en ef mér finnst að minn tími sé liðinn mun ég hætta, hvort sem við verðum í Meistaradeildinni eða ekki."

Nistelrooy segir einnig að sú tegund af sóknarmanni sem hann líkist helst sé í útrýmingarhættu.

„Er Lionel Messi sóknarmaður? Hann býr yfir öllum þeim eiginleikum sem sóknarmenn þurfa að búa yfir. Hann skorar mörk, leggur upp mörk og rekur boltann áfram. Alveg eins og Cristiano Ronaldo."

„Þetta er alveg nýr stíll og hvorugur þeirra líkist mér. Ég vil vera inn í vítateignum þegar eitthvað gerist. Ég sé ekki mikið af þannig sóknarmönnum í dag."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×