Lífið

Alþjóðlegar stjörnur á Inspired by Iceland-tónleikum undir Eyjafjöllum

Damien Rice í Ráðhúsinu í nóvember, þar sem hann stóð fyrir sérstakri náttúruvæðingu. Hann kemur aftur hingað til lands og heldur tónleika í næstu viku.
Damien Rice í Ráðhúsinu í nóvember, þar sem hann stóð fyrir sérstakri náttúruvæðingu. Hann kemur aftur hingað til lands og heldur tónleika í næstu viku.
Damien Rice er á leiðinni til landsins enn á ný. Hann kemur fram á tónleikunum á vegum Inspired by Iceland-verkefnisins í Hamragörðum undir Eyjafjöllum 1. júlí.

Damien ætlaði í fyrstu aðeins að koma fram á tónleikunum á myndbandi, eins og nokkrir listamenn, en ákvað á síðustu stundu að slá til og mæta í eigin persónu. Rice kom síðast til landsins seint á síðasta ári þegar hann tók upp tónleika í hljóðverinu Sundlaugin ásamt því að bregða á leik með leikskólabörnum í Reykjavík.

Hafdís Huld hefur einnig bæst í hópinn sem kemur fram á tónleikunum, en fyrir voru listamenn á borð við Lay Low, Diktu og Amiinu.

Argentíska þokkadísin Mia Maestro spilar með Pétri Hallgrímssyni.

Þá kemur gítarleikarinn Pétur Hallgrímsson fram undir nafninu Pondus. Pétur tók nýverið upp dúett með Shirley Manson úr hljómsveitinni Garbage sem naut mikilla vinsælda á seinni hluta tíunda áratugarins. Hljómsveitin kom til landsins árið 1999 og hélt tónleika á þaki Faxaskála. Hann hefur nú verið rifinn, en kaldhæðni örlaganna hagar því þannig að tónlistarhúsið Harpa rís á rústunum.

Shirley er ekki væntanleg til landsins til að syngja lagið með Pétri, en í stað hennar mætir argentínska þokkadísin Mia Maestro. Mia þessi er stórvinkona Sölmu Hayek, sem er, að öðrum konum ólöstuðum, útlits- og líkamlegt þrekvirki. Mia hefur komið víða við og leikið í Alias-þáttunum sem Íslendingar þekkja af RÚV ásamt því hafa leikið í fjölmörgum kvikmyndum og talað inn á þátt af Family Guy.

Mial er einnig gallharður stuðningsmaður argentínska landsliðsins og miðað við ástríðu hennar fyrir fótboltanum skulum við vona að Maradona og félagar í Argentínu verði komnir í átta liða úrslit þegar hún mætir til landsins. - afb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.