Enski boltinn

Liverpool fór örugglega áfram í Evrópudeildinni í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Joe Cole lék vel í kvöld.
Joe Cole lék vel í kvöld. Mynd/AFP
Liverpool er komið áfram í forkeppni Evrópudeildarinnar eftir 2-0 sigur á makedóníska liðinu Rabotnicki á Anfield í kvöld. Liverpool vann fyrri leikinn 2-0 og því 4-0 samanlagt.

David Ngog skoraði bæði mörkin í fyrri leiknum og kom Liverpool í 1-0 í kvöld þegar hann skallaði inn frábæra sendingu frá Joe Cole á 22. mínútu.

David Ngog átti einnig þátt í seinna markinu þegar hann fiskaði vítaspyrnu sem Steven Gerrard nýtti á 40. mínútu.

Joe Cole átti mjög góðan leik í kvöld og var nálægt því að skora þriðja markið þegar hann skaut í stöngina á upphafsmínútu seinni hálfleiksins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×