Innlent

Lokað fyrir lán vegna Búðarhálsvirkjunar

Fjárfestingarbanki Evrópu lokaði í júlí á lán til Landsvirkjunar vegna framkvæmda við Búðarhálsvirkjun. Frá þessu er greint í Viðskiptablaðinu í gær og er ástæðan sögð sú að ekki hefur enn fengist botn í Icesavedeilu Íslendinga við Breta og Hollendinga.

Viðskiptablaðið segir að ekki hafi verið einhugur um láns­ákvörðunina á stjórnarfundi bankans og úr varð að lánið var stöðvað. Í yfirstjórn hans eiga sæti fjármálaráðherrar Evrópusambandsríkjanna og þar á meðal fjármálaráðherra Bretlands og Hollands.- mþl






Fleiri fréttir

Sjá meira


×