Fótbolti

Olic frá í nokkrar vikur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

FC Bayern varð fyrir áfalli þegar ljóst varð að króatíski framherjinn, Ivica Olic, getur ekki leikið vegna hnémeiðsla.

"Þetta lítur ekki vel út. Læknirinn ætlar samt að senda hann í sjúkraþjálfun í stað þess að skera hann upp. Engu að síður verður hann lengi frá," sagði ræðumaðurinn snjalli, Louis Van Gaal, þjálfari FC Bayern.

Ilic er ekki einn á meiðslabekknum hjá félaginu því Arjen Robben er einnig meiddur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×