Viðskipti erlent

Fann tugi milljóna í gamalli bankabyggingu

Belginn Ferhat Kaya í borginni Ghent fann nýlega 300.000 evrur eða um 47 milljónir kr. í gömlum peningaskáp sem skilinn hafði verið eftir í gamalli bankabyggingu sem áður hýsti Deka Bank.

Kaya hafði keypt bygginguna til að gera hana upp en hún var síðast útibú Deka Bank árið 2001. Þegar Kaya keypti bygginguna bauðst fasteignasalinn til þess að láta fjarlægja peningaskápinn, sem er gamall og þungur, fyrir 3.000 evrur aukalega. Þessu hafnaði Kaya.

Kaya fékk svo tvo bræður sér til liðs við að fjarlægja skápinn úr byggingunni. Þegar þeim tókst að opna skápinn lágu þar áratugs gamlir 20 og 50 evra seðlar í búntum.

Kaya ákvað að hafa samband við lögregluna sem síðan tilkynnti Deka Bank um peningana. Bankinn er nú að rannsaka þetta mál. Hinsvegar mun Kaya eiga von á verðlaunum frá bankanum fyrir að hafa tilkynnt lögreglunni um fund sinn.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×