Lífið

Keyptu Alþjóðahúsið á Hverfisgötu fyrir Bar 11

Össur Hafþórsson, lengst til vinstri, undirbýr flutning Bars 11 á Hverfisgötu. Með honum á myndinni eru Linda Mjöll, Eyvindur og Einar Bragi.  Fréttablaðið/Anton
Össur Hafþórsson, lengst til vinstri, undirbýr flutning Bars 11 á Hverfisgötu. Með honum á myndinni eru Linda Mjöll, Eyvindur og Einar Bragi. Fréttablaðið/Anton

Össur Hafþórsson, eigandi Reykjavík Ink og skemmtistaðanna Sódómu og Ellefunnar, keypti nýverið húsnæðið sem áður hýsti Kaffi Cultura á Hverfisgötu og stendur til að færa hinn goðsagnakennda Bar 11 þangað yfir.

„Við keyptum húsið fyrir nokkrum dögum og er ætlunin að færa Bar 11 yfir í nýtt og betra húsnæði innan skamms. Til stendur að hafa djasstónleikastað í kjallara hússins. Á miðhæðinni verður svo kaffihús og veitingastaður og á efri hæðinni verður barinn," segir Össur sem rekur staðinn ásamt eiginkonu sinni Lindu Mjöll Þorsteinsdóttur, Eyvindi Eggertssyni og Einari Braga Jónssyni.

Hinn nýi Bar 11 verður opnaður formlega þann 28. maí næstkomandi og verður gamla húsnæðið kvatt með virktum um næstu helgi.

„Ellefan hefur hingað til í raun bara verið virk um helgar en með þessu verður hægt að færa meira líf í staðinn. Þar að auki erum við með fínan pall á bak við húsið þar sem fólk getur notið sólarinnar á góðviðrisdögum. Veitingastaðurinn verður einnig góð viðbót, en við hyggjumst bjóða upp á dvergborgara, sem er uppskrift frá mér sjálfum, hestaborgara auk annarra rétta," útskýrir Össur.

Inntur eftir því hvað gert verði við gamla húsnæði Ellefunnar segir Össur að þar verði opnaður nýr bar sem fær hið skemmtilega nafn Eyjafjallajökull.

„Í gamla húsnæðinu opnum við barinn Eyjafjallajökul þar sem trúbadorstemningin verður ríkjandi. Í haust ætlum við svo að breyta þessu í sædýrasafn með utanáliggjandi vatnsrennibraut. Ég hef heyrt að Hanna Birna borgarstjóri sé mikill dýravinur og geri því ráð fyrir að hún taki vel í þessi áform okkar," segir Össur kampakátur. - sm








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.