Settu slagsmálin á svið sér til gamans 29. janúar 2010 11:49 Enginn áhættuleikari. Höggin dundu á piltinum þegar drengirnir slóugst sér til gamans.
Piltarnir tveir sem slógust í myndbandi sem Vísir sagði frá í gær gáfu sig fram til lögreglunnar í gær í fylgd feðra sinna. Þar útskýrðu þeir myndbandið þannig að þeir hefðu sett það á svið sér til gamans. Barnaverndarnefnd og skólayfirvöld í Keflavík hafa tekið á málinu að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum. Vísir greindi frá því í gær að gróft og niðurlægjandi myndskeið mætti finna á vefsíðunni Youtube af íslenskum unglingum að misþyrma öðrum pilt. Myndbandið var tekið út af vefnum eftir að fréttin birtist. Myndbandið var hljóðskreytt með tónlist líkt og um eðlilegt afþreyingaefni væri að ræða en á því mátti sjá einn ungling ganga í skrokk á öðrum pilti. Allt í kring var hópur unglinga sem fylgdist með aðförinni sem virtist bæði gróf og niðurlægjandi. Í einu broti myndskeiðsins mátti sjá þriðja piltinn blanda sér inn í áflogin og slá fórnalambið bylmingshögg í andlitið. Að lokum náði annar unglingurinn að snúa hinn niður og lét svo höggin dynja linnulaust á honum. Síðan reif hann drenginn upp, eins og sést á myndum hér við hliðina á, og hélt áfram að slá hann ítrekað í andlitið. Eftir að frétt Vísis birtist um málið var myndbandið tekið út af Youtube-vefnum. Í kjölfarið hófs rannsókn lögreglunnar í Keflavík á málinu. Síðar gáfu piltarnir, sem eru fimmtán ára gamlir, sig fram til lögreglunnar og gáfu þær skýringar að atvikið hefði verið sett upp, eins og það var orðað. Að sögn lögreglunnar voru drengirnir heldur lúpulegir yfir atvikinu en myndskeiðið var tekið upp síðasta haust. Skólayfirvöld tóku málið í sínar hendur sem og barnaverndaryfirvöld í Reykjanesbæ. Ekki þótti ástæða til þess að rannsaka málið frekar af hálfu lögreglunnar.
Tengdar fréttir Niðurlægjandi líkamsárás í Keflavík tekin upp á myndband Gróft og niðurlægjandi myndskeið má finna á vefsíðunni Youtube af íslenskum unglingum að misþyrma öðrum pilt. Í athugasemdakerfi fyrir neðan myndbandið stendur að piltarnir séu fæddir 1995 og eru þeir því fimmtán ára gamlir. Myndbandið var sett inn á vefinn fyrir mánuði síðan. 28. janúar 2010 11:45 Mest lesið Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Spjótin beinast að syni Reiners Erlent Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Árásarfeðgarnir nafngreindir Erlent Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Erlent Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana Innlent Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Innlent Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Innlent Fleiri fréttir Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Heyrði skothvellina á Bondi strönd Vinstri beygjan bönnuð Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Magnea sækist eftir 2.-4. sæti á lista Samfylkingar Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Handtekinn með stóran hníf Leggja til að bókasafnsgreiðslur verði hækkaðar Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Ekkert því til fyrirstöðu að Ísland taki þátt í drónakaupum Ekkert ákveðið varðandi framboð: „Ég er í tveimur flokkum“ Hálka þegar bíll valt í Biskupstungum Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli 270 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Ástandið á bráðamóttökunni sýni viðkæmni kerfisins Segir Kristrúnu verja „lögbrot“ samráðherra síns Hryðjuverkaárás í Ástralíu og ástand í heilbrigðiskerfinu Sanna segir frá nýju framboði Sjá meira
Niðurlægjandi líkamsárás í Keflavík tekin upp á myndband Gróft og niðurlægjandi myndskeið má finna á vefsíðunni Youtube af íslenskum unglingum að misþyrma öðrum pilt. Í athugasemdakerfi fyrir neðan myndbandið stendur að piltarnir séu fæddir 1995 og eru þeir því fimmtán ára gamlir. Myndbandið var sett inn á vefinn fyrir mánuði síðan. 28. janúar 2010 11:45