Lífið

Jennifer Aniston vill stofna fjölskyldu

Vonast til að hitta rétta manninn og stofna með honum fjölskyldu.
Vonast til að hitta rétta manninn og stofna með honum fjölskyldu.

Leikkonan Jennifer Aniston er bjartsýn á að hún muni hitta rétta manninn og stofna með honum fjölskyldu.

„Ég hef upplifað margt yndislegt um árin og ég hef lært virkilega mikið um sjálfa mig," sagði hin 41 árs Aniston sem skildi við hjartaknúsarann Brad Pitt árið 2005.

„Ég er tilbúin til að njóta þess að vera með frábærum náunga og eignast með honum fjölskyldu. Það hefur alltaf verið minn draumur," sagði Aniston. Hún hefur átt erfitt uppdráttar í ástalífinu eftir að hún skildi við Pitt en vonast nú til að gæfan verði henni nú hliðholl.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.