Körfubolti

IE-deild kvenna: KR með annan fótinn í úrslit

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Kvennalið KR steig stórt skref í átt að úrslitaeinvígi Iceland Express-deildar kvenna með flottum útisigri á Haukum, 75-79.

KR byrjaði leikinn mjög vel og leit aldrei til baka. Baráttuglaðar Haukastúlkur reyndu að klóra sig inn í leikinn en náðu KR aldrei.

KR er komið í 2-0 í einvíginu og vantar aðeins einn sigur til þess að komast í úrslit.

Haukar-KR  75-79

Stig Hauka: Heather Ezell 28, Kiki Jean Lund 16, María Lind Sigurðardóttir 11, Sara Pálmadóttir 9, Ragna Margrét Brynjarsdóttir 3, Heiðrún Ösp Hauksdóttir 3.

Stig KR: Signý Hermannsdóttir 18, Jenny Pfeiffer-Finora 14, Margrét Kara Sturludóttir 12, Unnur Tara Jónsdóttir 12, Hildur Sigurðardóttir 11, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 10, Helga Einarsdóttir 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×