Fjöldi fátækra Dana hefur aldrei verið meiri 13. ágúst 2010 07:53
Fjöldi þeirra sem lifa undir fátækramörkunum í Danmörku hefur aldrei verið meiri í sögunni. Yfir 300.000 Danir teljast nú til fátækra þar í landi. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem gerð var á vegum heildarsamtaka dönsku verkalýðshreyfingarinnar. Fram kemur að frá árinu 2001 hefur fátækum í Danmörku fjölgað um 40% og fær núverandi hægri stjórn landsins sökina fyrir þessa þróun enda hefur hún setið að völdum allan þennan tíma. Lars Andersen talsmaður hópsins sem vann skýrsluna segir að nú sé hægt að sjá það svart á hvítu að stefna ríkisstjórnarinnar á sök á því að fátækt hefur aukist þetta mikið í Danmörku, Fátæktarmörkin í Danmörku eru miðuð við að einstaklingur sem heldur heimili hafi minna en tvær miljónir kr. í tekjur umfram skatta árlega. Fyrir par er upphæðin 3 milljónir króna en upphæðin lækkar á hvern einstakling eftir því sem fleiri eru í heimili. Skýrslan sýnir að fátæktin kemur hvað harðast niður á börnum en um 31.000 börn undir 18 ára aldri tilheyra fjölskyldum sem lifa undir fátæktarmörkunum.
Mest lesið „Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“ Atvinnulíf Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn Viðskipti innlent Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play Viðskipti innlent Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Viðskipti innlent Play í frjálsu falli Viðskipti innlent Ekki trompast við fólk í vinnu eða á fundum Atvinnulíf Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Viðskipti innlent Sölunni slegið á frest Viðskipti innlent „Síðan kemur í ljós að við erum í gjörólíkum störfum“ Atvinnulíf „Opinberi geirinn er að breytast og þar þarf mikinn fjölda verkefnastjóra“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? United Airlines hefur flug milli New York og Nuuk Viðskiptavinir gjaldþrota rafmyntakauphallar endurheimta milljarða Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Samið um lok umfangsmikils verkfalls hafnarverkamanna Kærasta rafmyntamógúls í fangelsi vegna FTX-svikanna Stýrivextir lækkaðir í Bandaríkjunum í fyrsta sinn í fjögur ár Tupperware lýsir yfir gjaldþroti Snúa við dómnum og dæma Bonnesen í fangelsi Gera Apple að greiða tvær billjónir í skatta Skaut samstundis niður tillögur um efnahagslega björgun Evrópu Bein útsending: Apple kynnir nýjustu græjurnar Hætta steðjar að lífsgæðum Evrópubúa Volvo heykist á algjörri rafvæðingu árið 2030 Sjá meira