Balti og Óttar leigðu sér þyrlu 28. apríl 2010 13:20 Það verður spennandi að sjá hvernig eldgosið tekur sig út á hvíta tjaldinu í stórmynd Baltasars.
Kvikmyndaleikstjórinn Baltasar Kormákur var fljótur að hugsa þegar eldgosið hófst á Fimmvörðuhálsi á dögunum. Baltasar sá að þarna væri komið frábært myndefni í fyrirhugaða víkingamynd hans, Víkingr, sem stórir aðilar í Hollywood ætla að framleiða. Tökumaðurinn í ferðinni var Óttar Guðnason en þeir félagar leigðu sér þyrlu til að ná sem bestu skotum af eldsumbrotunum. Óhætt er að segja að mikil eftirvænting ríki eftir þessari stórmynd Baltasars, sem segir frá víkingum sem flytja þræla frá Írlandi til Íslands. Ekkert er til sparað og hasarinn verður í fyrirrúmi. Auk leikmyndahönnuðarins Karls Júlíussonar, sem hlaut aðalverðlaun leikmyndahönnuða í Bandaríkjunum á dögunum, hafa verið ráðnir sérfræðingar í bardagaatriðum, þeir hinir sömu og sáu um bardagaatriðin í Braveheart-mynd Mel Gibson, búningahönnuður verður Consalata Boyle sem var tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir búninga sína í The Queen, förðunarmeistarinn er sá hinn sami og var í Apocalypto og þannig má lengi telja. Myndin er talin kosta á bilinu sex til níu milljarða króna.
Lífið Mest lesið Madonna og Elton John grafa stríðsöxina Lífið Seldu draumahúsið og skella sér í Asíuævintýri með krakkana Lífið „Fólkið hefur gleymst og þetta er ekki manneskjulegt“ Lífið Kveðju kastað á Megas í tilefni dagsins Lífið Stjörnulífið: Skvísuafmæli, Hönnunarmars og hækkandi sól Lífið Sjóræningjar réðust á Íslendinga Lífið 80 syngjandi karlar syngja hér heima og í Gimli í Kanada Lífið Með skottið fullt af próteini Lífið Þetta er ástæðan fyrir því að þú átt aldrei að bjóða óperusöngvara í matarboð Gagnrýni Tónhylur sameinar reynslubolta og þá efnilegustu Lífið Fleiri fréttir Þeir munu túlka Bítlana í myndum Sam Mendes Stjörnum prýdd stikla Black Mirror Nolan sagður stefna á tökur á Íslandi Ljósbrot besta myndin en Snerting með flest verðlaun Happy Gilmore snýr aftur Harpa kvótadrottning aftur á skjáinn Ólafur Darri og félagar framleiða sína fyrstu teiknimynd Anora sigurvegari á Óskarnum Óskarsverðlaunasérfræðingur spáir í Hollywood-spilin: Spennandi óskar í vændum og ekkert meitlað í stein Sjá meira
Óskarsverðlaunasérfræðingur spáir í Hollywood-spilin: Spennandi óskar í vændum og ekkert meitlað í stein