Lífið

Nýjasta mynd Demi Moore floppar

Demi á frumsýningu myndarinnar um daginn.
Demi á frumsýningu myndarinnar um daginn.
Nýjasta mynd leikkonunnar Demi Moore, The Joneses, var í 17. sæti yfir aðsóknarmestu myndir Bandaríkjanna um síðustu helgi. Þetta eru gríðarleg vonbrigði fyrir aðstandendur myndarinnar en hún hefur aðeins verið í sýningu tvær helgar.

Myndin er talin hafa kostað um tíu milljónir dollara en eftir tvær aðalsýningarhelgarnar hefur hún ekki skilað einni milljón í kassann.

Mótleikari Demi í myndinni er David Duchovny. Þau leika úthverfahjón sem lifa að því er virðist fullkomnu lífi en luma á hrikalegum leyndarmálum. Myndin fær miðlungsdóma gagnrýnenda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.