Lífið

Heimsótt af lögreglunni

Lindsay Lohan reiddist föður sínum fyrir að koma með lögreglumann inn á heimili hennar. Hér er hún með Ali systur sinni. Nordicphotos/getty
Lindsay Lohan reiddist föður sínum fyrir að koma með lögreglumann inn á heimili hennar. Hér er hún með Ali systur sinni. Nordicphotos/getty

Michael Lohan, faðir leikkonunnar Lindsay Lohan, heimsótti heimili hennar ásamt lögreglumanni nú í vikunni. Hann sagðist hafa áhyggjur af yngri systur Lindsay, Ali, sem hefur dvalið hjá systur sinni undanfarna daga og sást meðal annars með Lindsay á Coachella-hátíðinni. Lögreglumaðurinn ræddi stuttlega við Ali, sem er aðeins sextán ára gömul, og yfirgaf að því loknu heimilið.

Lindsay deildi fréttunum með aðdáendum sínum á Twitter-síðu sinni þar sem hún hneykslaðist meðal annars á því að húsvörðurinn hafi hleypt lögreglumanninum inn þar sem hann gæti hafa verið ókunnugur maður dulbúinn sem laganna vörður.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.