Innlent

Búast við að Keflavíkurflugvöllur verði lokaður fyrri hluta þriðjudags

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Icelandair hefur sett upp flugáætlun fyrir næsta þriðjudag sem tekur mið af áframhaldandi flugtakmörkunum á Keflavíkurflugvelli vegna ösku frá gosinu í Eyjafjallajökli. Flugáætlun Icelandair þar til síðdegis á þriðjudag verður þannig með svipuðum hætti og sú áætlun sem sett var upp fyrir helgina. Flugvöllurinn í Glasgow verður miðstöð millilandaflugs Icelandair og Boeing 757 þotur Icelandair fljúga þaðan til og frá Bandaríkjunum og til og frá áfangastöðum í Evrópu.

Tvisvar til þrisvar á dag er síðan flogið með farþega milli Glasgow og Akureyrar. Því má segja að þeir sem fara til og frá Íslandi með Icelandair fram yfir helgi muni millilenda í Glasgow. Áfram er rétt að hvetja farþega til þess að fylgjast vel með því hvernig flugi Icelandair til og frá landinu verður háttað því nauðsynlegt getur reynst að gera breytingar með skömmum fyrirvara. Farþegar eru hvattir til þess að fylgjast með fréttum og upplýsingum um flugáætlun, komu og brottfarartíma fluganna, meðal annars á icelandair.is.

Þjónustuver Icelandair verður opið um helgina. Rútuferðir eru í boði milli BSÍ í Reykjavíkur og Akureyrarflugvallar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×