Innlent

Bubbi biður Guð að styrkja fjölskyldur Hannesar og Gunnars

„Við skulum heldur ekki gleyma því að það eiga tvær fjölskyldur um sárt að binda í þessu máli,“ segir Bubbi.
„Við skulum heldur ekki gleyma því að það eiga tvær fjölskyldur um sárt að binda í þessu máli,“ segir Bubbi.

Bubbi Morthens biður góðan Guð að styrkja fjölskyldur Hannesar Þórs Helgasonar og Gunnars Rúnars Sigþórssonar í sorg þeirra og taka burt reiðina sem brenni aðeins fólk upp og gefi engan frið. Harmur fjölskyldu Hannesar sé mikill og reiðin sé skiljanleg.



Gunnar Rúnar, sem hefur játað að hafa orðið Hannesi Þór að bana að morgni sunnudagsins 15. ágúst síðastliðinn, er talinn ósakhæfur. Þetta er niðurstaða geðrannsóknar sem Gunnar Rúnar hefur gengist undir. Verjandi hans fer fram á að réttarhaldið verði lokað og leggur sérstaka áherslu á að það verðu lokað almenningi og fjölmiðlum þegar Gunnar Rúnar gefur skýrslu sem og geðlæknir hans.



Bubbi fjallar um málið í pistli sem hann kallar „Fjölmiðlaklám" á Pressunni í dag. „Harmleikurinn í Hafnafirði er hræðilegur hlutur. Sá sem framdi verknaðinn hefur játað að hann hafi undirbúið sig lengi."



Bubbi bendir á að fyrst tveir geðlæknar hafi komist að þeirri niðurstöðu að Gunnar Rúnar sé ósakhæfur þá hljóti þeir að byggja niðurstöðu sína á einhverju áþreifanlegu.



„Nú er komin Fésbókarhópur sem vill hefnd og leyfir sér að halda því fram að morðinginn sé sakhæfur. Þetta fólk hefur ekkert fyrir sér í því annað en reiði og sorg. Hver yrði ekki reiður og sorgmæddur ef hann missti náinn aðstandanda á þennan máta?"



Þá segir Bubbi: „Menn geta haft skoðun á Gunnari í Krossinum, en hvernig hann tók á máli morðingja móður sinnar er eitt magnaðasta dæmi í seinni tíma hér á landi um hvernig kærleikur og mennska í sinni fegurstu mynd birtist í fyrirgefningunni. Mér er það líka óskiljanlegt hvernig fjölmiðlar eru að rúnka sér á þessu máli. Það er alger óþarfi og meiðir bara aðstandendur meira. Við skulum heldur ekki gleyma því að það eiga tvær fjölskyldur um sárt að binda í þessu máli."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×