Viðskipti erlent

Mikil aukning á peningaþvætti hjá ítölsku mafíunni

Seðlabanki Ítalíu hefur sent frá sér upplýsingar sem sýna að mafía landsins hefur stóraukið peningaþvætti sitt frá því að fjármálakreppan hófst fyrir tveimur árum síðan.

Tölur frá sérstakri eftirlitsdeild seðlabankans sem rannsakar grunsamlegar fjármunatilfærslur sýna að 15.000 slíkar voru gerðar á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er rúmlega 50% aukning frá sama tímabili í fyrra og álíka mikið og allt árið 2008. Í flestum tilvikum er talið að um peningaþvætti sé að ræða.

Sökum fjármálakreppunnar hafa ítalskir bankar haldið að sér höndunum í útlánum sínum og hefur mafían fyllt inn í það tómarúm sem skapast hefur.

Í umfjöllun um málið á Bloomberg fréttaveitunni segir að skipulögð glæpasamtök á Ítalíu juku veltu sína á síðasta ári um 4% og nam hún 135 milljörðum evra eða um 21 þúsund milljörðum króna.

Þá hafa nýlegar fjöldahandtökur ítölsku lögreglunnar á meðlimum Ndrangheta, hættulegustu mafíusamtökum landsins, sýnt að samtökin hafa komið sér vel fyrir í kringum Mílanborg sem er fjármálamiðstöð Ítalíu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×